Um okkur

Við erum Kampai. Okkur leiðist báðum hin mikla sóun sem gjafapappír veldur í hvert skipti sem gjöf er gefin. Við ákváðum að taka málin í okkar eigin hendur og hófum innflutning á furoshiki-klútum, í von um að draga úr gjafapappírsnotkun landans. Markmið okkar er að það verði óþarfi að vera með svartan ruslapoka undir gjafapappír í hverju jólaboði.