Leiðbeiningar

Furoshiki-innpökkun er byggð á einföldum hnútum — mun fljótlegri en gjafapappír, sérstaklega fyrir „mjúku pakkana“. Byrjaðu á grunnhnútnum (ma-musubi, ferningshnútur) og restin fylgir. Á Instagram setjum við reglulega inn myndbönd með fleiri hugmyndum.

Otsukai Tsutsumi Hefðbundinn pakki

Erfiðleiki: Auðvelt · Klútur: 50–70 cm

Einfaldasta aðferðin og sú fyrsta sem allir læra — hentar utan um flest nema ílanga hluti: bækur, öskjur, nestisbox og mjúka pakka.

  1. Leggðu klútinn eins og demant og hlutinn í miðjuna.
  2. Brjóttu hornið sem snýr að þér yfir hlutinn.
  3. Brjóttu fjærhornið yfir á móti.
  4. Taktu hliðarhornin tvö og bittu ferningshnút (ma-musubi) ofan á.

Hira Tsutsumi Hnútalaus gjafapakkning

Erfiðleiki: Auðvelt · Klútur: 50–70 cm

Fáguð innpökkun án sýnilegs hnúts — hornin eru brotin hvert yfir annað svo úr verður stílhrein gjafapakkning.

  1. Leggðu hlutinn í miðju klútsins, horn klútsins snúa út.
  2. Brjóttu nærhornið yfir og stingdu endanum undir hlutinn.
  3. Brjóttu hliðarhornin inn yfir, hvort á eftir öðru.
  4. Rúllaðu pakkanum að fjærhorninu og stingdu endanum snyrtilega undir.

Junko Tsutsumi Flöskupakki

Erfiðleiki: Miðlungs · Klútur: 70 cm

Klassíska leiðin til að færa vín- eða veisluflösku — með handfangi. Útskriftarveislan, matarboðið, jólin: alltaf flottasta gjöfin á borðinu.

  1. Stilltu flöskunni upp í miðju klútsins.
  2. Taktu tvö gagnstæð horn upp fyrir stútinn og bittu ferningshnút.
  3. Snúðu hinum tveimur hornunum fram fyrir og krossaðu þau aftan við flöskuna.
  4. Bittu þau að framan — og snúðu efri endunum saman í handfang.

Suika Tsutsumi Vatnsmelónupoki

Erfiðleiki: Miðlungs · Klútur: 90–104 cm

Burðarpoki fyrir kúlulaga og þunga hluti — nefndur eftir vatnsmelónunni. Frábær sem innkaupapoki eða undir ávexti á lautarferðinni.

  1. Bittu tvö aðliggjandi horn saman í ferningshnút.
  2. Bittu hin tvö hornin saman á sama hátt.
  3. Stingdu öðrum hnútnum í gegnum lykkjuna á hinum.
  4. Hnútarnir tveir mynda handfang — pokinn heldur laginu sjálfur.

Katakake Fukuro Einfaldur burðarpoki

Erfiðleiki: Auðvelt · Klútur: 90–104 cm

Fljótlegasti taupokinn — tveir hnútar og þú ert komin(n) með tösku á öxlina. Fullkominn í búðarferðina eða sundið.

  1. Brjóttu klútinn í þríhyrning.
  2. Bittu hnút á hvort horn þríhyrningsins fyrir sig.
  3. Snúðu hnútunum inn í pokann svo þeir myndi botnhornin.
  4. Bittu efri hornin tvö saman — það er ólin.

Yotsu Musubi Fjögurra laufa blómahnútur

Erfiðleiki: Miðlungs · Klútur: 50–70 cm

Skrautlegasta útgáfan — hnútarnir fjórir mynda blóm ofan á pakkanum. Þegar innpökkunin á að stela senunni.

  1. Leggðu hlutinn í miðjuna og taktu öll fjögur hornin upp.
  2. Bittu tvö gagnstæð horn saman í ferningshnút.
  3. Bittu hin tvö hornin saman þvert yfir fyrsta hnútinn.
  4. Togaðu og formaðu endana fjóra svo þeir myndi blómablöðin.

Eins og þú sérð eru möguleikarnir ótal margir — leyfðu þér að prófa! Vantar þig klút? Skoðaðu úrvalið.